
Fjarðabyggð mætir Njarðvík í sannkölluðum botnbaráttuslag á Eskifjarðarvelli laugardaginn 28. ágúst kl. 14. Liðin skipa tvö neðstu sæti 1. deildar en Fjarðabyggð er í 11. sæti með 15 stig og Njarðvík í því 12. með 11 stig. Þetta er því mikilvægur leikur fyrir bæði lið því Fjarðabyggð gæti komist úr fallsæti með sigri og Njarðvík ætti enn möguleika að bjarga sér ef þeir sigra.
Fyrri leik liðanna í Njarðvík lyktaði með jafntefli 1-1 og skoraði Jóhann Ragnar Benediktsson mark Fjarðabyggðar. Flottur stuðningur áhorfenda var í síðasta leik gegn HK og nú reynum við að bæta um betur og fjölmennum á völlinn og styðjum Fjarðabyggð til sigurs. Áfram Fjarðabyggð
...