19 Mars, 2010 Fjarðabyggð - Haukar Fjarðabyggð og Haukar mætast í Lengjubikarnum um helgina. Leikurinn er á sunnudag kl. 13 í Fjarðabyggðarhöllinni. Haukar sem unnu sér sæti í Úrvalsdeild síðasta sumar eru sem stendur í 6. sæti A-deildar riðli 1 með 3 stig eftir 3 leiki. Fjarðabyggð er í 7. sæti með 3 stig eftir 4 leiki. Kíkjum nú í höllina á sunnudag og hvetjum Fjarðabyggð til sigurs....
13 Mars, 2010 Stórsigur gegn Sindra Sameiginlegt lið 2. flokks Fjarðabyggðar/Leiknis og Hugins vann í dag stórsigur á Sindra eða 7-3. Staðan í hálfleik var 4-1 en Sindri bætti í og minnkaði muninn í 4-3 áður en okkar menn settu 3 mörk í lokin. Daniel Sakaluk skoraði 4 mörk og þeir Hákon Sófusson, Sveinn Fannar Sæmundsson og Hilmar Bjartþórsson eitt hver. Gaman var að fylgjast með þessu efnilega liði sem gerir ábyggilega góða hluti í sumar....
12 Mars, 2010 Æfingaleikur hjá 2. flokki karla Sameiginlegt 2. flokks lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins spilar æfingaleik um helgina við Sindra. Leikið verður í Fjarðabyggðarhöllinni og hefst leikurinn á laugardag kl. 16. Endilega kíkið við og sjáið framtíðarleikmenn spreyta sig....
04 Mars, 2010 Daníel aftur í Fjarðabyggð Fjarðabyggð fékk í dag varnarmanninn Daníel Frey Guðmundsson lánaðan út leiktíðina frá Fylki. Daníel spilaði samtals 24 leiki með Fjarðabyggð síðasta sumar og skoraði í þeim 2 mörk. Daníel var einmitt valinn í úrtakshóp U-19 ára landsliðsins í lok síðasta sumars en Daníel verður 19 ára í apríl. Frábært að fá Daníel aftur enda stóð hann sig mjög vel síðasta sumar og er góður félagi. Daníel mun spila með Fjarðabyggð um helgina í Lengjubikarnum gegn ÍA og Njarðvík en báðir leikirnir fara fram syðra....