26 Febrúar, 2010 Samstarf í leikmannamálum Ágætis samstarf hefur undanfarið verið í leikmannamálum milli Fjarðabyggðar og Leiknis F. og er það vel. Leiknismenn lánuðu okkur markvörð sinn Óðinn Ómarsson þann 20. febrúar í mánuð til að leysa Rajko af í markinu þar sem Rajko nefbrotnaði í leik við Hött. Sannarlega vinargreiði enda spilaði Fjarðabyggð um síðustu helgi við Þór Akureyri í Lengjubikarnum þar sem Óðinn stóð í markinu og stóð sig vel. Tveir uppaldir leikmenn Leiknis F. gengu einmitt í raðir KFF um áramót þ.e. þeir Hilmar Bjartþórs og Adnan Mesetovic. Marinó Óli Sigurbjörnsson lék með KFF síðasta sumar mun nú aftur snúa til Leiknis og væntanlega munu einhverjir fleiri úr KFF spila sem lánsmenn með Leikni F. í sumar....
26 Febrúar, 2010 Stórleikur í höllinni Það verður sannkallaður stórleikur í Fjarðabyggðarhöllinni á morgun laugardaginn 27. febrúar kl. 14. Þá mætir úrvalsdeildarlið Grindavíkur til leiks gegn Fjarðabyggð í A-deild riðli 1 í Lengjubikarnum. Fyrrum leikmaður Fjarðabyggðar Sveinbjörn Jónasson leikur nú með Grindavík en Sveinbjörn var markahæsti leikmaður Fjarðabyggðar sumarið 2008. Fjölmennum nú í höllina og styðjum strákana til sigurs en aðgangur er ókeypis. Áfram Fjarðabyggð....
24 Febrúar, 2010 Búið að draga í bikarnum Búið er að draga í tvær fyrstu umferðir í bikarkeppni KSÍ. Fjarðabyggð/Leiknir mætir Sindra í 2. umferð í bikarkeppni kvenna þann 5. júní. Í bikarkeppni karla mætir Fjarðabyggð sigurvegaranum úr leik Spyrnis/Einherja frá 1. umferð á heimavelli 18. maí. Síðan verður dregið í 32 liða úrslit í framhaldinu....
21 Febrúar, 2010 Petra Lind skrifar undir Petra Lind Sigurðardóttir hefur skrifað undir samning við Fjarðabyggð og mun leika með okkur í sumar. Petra Lind lék með KA/Þór sumarið 2006, hefur átt landsleiki með U19 ára liðinu og lék síðast með Breiðablik 2007 og 2008. Petra Lind slasaðist í boltanum og var frá vegna meiðsla sumarið 2009. Það er okkur í Fjarðabyggð mikil ánægja að fá Petru Lind aftur heim, en Petra Lind er frá Neskaupstað og hefur alið manninn í Þrótti Nes. S.l. áramót skrifaði Alexandra Tómasdóttir undir sem kynnt var á heimasíðu KFF í desember. En með tilkomu Petru Lind og Alexandru mun Fjarðabyggð/Leiknir styrkjast mikið fyrir sumar. Einnig skrifaði Berglind Lilja Guðlaugsdóttir undir samning við Fjarðabyggð fyrir stuttu en Berglind er ein af framtíðarleikmönnum félagsins....
20 Febrúar, 2010 Tap gegn Þór Fjarðabyggð og Þór Akureyri mættust í Lengjubikarnum í Fjarðabyggðarhöllinni í dag. Skemmst er frá því að segja að Þór var sterkari aðilinn í leiknum en tókst þó ekki að skora fyrr en undir lok leiksins og unnu því 0-1. Fjarðabyggðarmenn virkuðu frekar andlausir en áttu þó góða spretti inn á milli en sköpuðu sér þó ekki nein afgerandi færi. Næsti leikur í Lengjubikarnum er gegn úrvalsdeildarliði Grindavíkur í Fjarðabyggðarhöllinni laugardaginn 27. febrúar kl. 14....
19 Febrúar, 2010 Haukur Ingvar áfram í Fjarðabyggð Haukur Ingvar Sigurbergsson fyrirliði Fjarðabyggðar skrifaði í dag undir nýjan 2 ára samning sem gildir út árið 2011. Haukur hefur leikið með Fjarðabyggð frá árinu 2002 þegar liðið var í 3. deild en lék þó með KA árin 2004 og 2005 undir stjórn Þorvaldar Örlygssonar sem þá þjálfaði KA. Þorvaldur tók svo við Fjarðabyggð 2006 og Haukur kom þá aftur heim og hefur leikið hér síðan. Samtals hefur Haukur spilað 129 leiki í deild og bikar með Fjarðabyggð og skorað í þeim 4 mörk og öll af dýru gerðinni auðvitað. Gleðifréttir fyrir alla í Fjarðabyggð og frábært að hafa Hauk með áfram enda góður félagi....