27 Ágúst, 2009 Frítt á völlinn í boði Alcoa Stemmingin magnast fyrir leik Fjarðabyggðar og Selfoss og nú hefur Alcoa ákveðið að bjóða öllum frítt á leikinn sem hefst kl. 14 laugardaginn 29. ágúst. Frábært framtak hjá þeim og nú mæta allir! Fyrir leik munu stúlkur úr 4. flokki kvenna Fjarðabyggðar/Leiknis labba með liðunum inn á völlinn og Helga Jónsdóttir bæjarstýra verður heiðursgestur....
25 Ágúst, 2009 Toppslagur í 1. deild Karlalið Fjarðabyggðar hefur nú unnið síðustu þrjá leiki í 1. deild karla og með því komið sér í toppbaráttu deildarinnar. Fjarðabyggð er sem stendur í 4. sæti með 32 stig, HK í 3. sæti með 32 stig, Haukar í 2. sæti með 34 stig og Selfoss er í 1. sæti með 38 stig þegar fjórar umferðir eru eftir. Næsti heimaleikur Fjarðabyggðar er einmitt gegn toppliði Selfoss laugardaginn 29. ágúst kl. 14 á Eskifjarðarvelli. Frábær stuðningur áhorfenda hefur oft skipt sköpum í leikjum sumarsins og hvetjum við alla að mæta nú á völlinn og hvetja Fjarðabyggð til sigurs. Áfram Fjarðabyggð....
22 Ágúst, 2009 Páll Guðlaugsson: Svona þarf maður að spila suma leiki Páll Guðlaugsson þjálfari Fjarðabyggðar var að vonum ánægður eftir leik sinna manna gegn HK en Fjarðabyggð sigraði leikinn 1-0. Fjarðabyggð eru nú einungis tveimur stigum frá sæti í Úrvalsdeild þegar fjórar umferðir eru eftir....
22 Ágúst, 2009 Jóhann Ragnar: Okkur var spáð falli og við notfærum okkur það Hetja Fjarðabyggðar á Kópavogsvelli var Jóhann Ragnar Benediktsson sem skoraði eina mark leiksins þegar Fjarðabyggð heimsótti HK í toppslag í 1.deildinni. Með sigrinum eru Fjarðabyggð búnir að jafna HK að stigum og spennan gríðarleg á toppnum í 1.deildinni....
Á morgun, laugardag, mætir Fjarðabyggð liði HK á Kópavogsvelli. Um toppslag er að ræða enda liðin í þriðja og fjórða sæti - HK hefur 32 stig en Fjarðabyggð 29 stig. Liðin hafa aðeins mæst einu sinni áður en það var þegar KFF vann 3-2 í deildarleik liðanna fyrr í sumar. Leikurinn hefst kl.14:00
19 Ágúst, 2009 Ótrúleg endurkoma Fjarðabyggð vann Víking R í gærkvöldi 3-2. Með sigrinum fór Fjarðabyggð í fjórða sæti og heldur sé enn vel inn í toppbaráttunni. Haukar og HK unnu reyndar sína leiki þannig að enn eru nokkur stig í þau lið - þrjú stig í HK og fimm í Hauka. Selfoss er svo í toppsætinu stigi á undan Haukum. En nánar að leiknum í gær....
17 Ágúst, 2009 Mörkin á fotbolti.net Rétt er að benda á að á hinum frábæra fótboltavef, fotbolti.net, er að finna upptökur úr leikjum í 1.deildinni. Markapakkinn er úr fimm leikjum í síðastliðnum umferðum. Athygli vekur að þrír af þessum leikjum eru heimaleikir KFF. Rétt er að þakka hinum frábæra myndatökumanni Jóni Guðmundssyni fyrir hans framlag en KFF er greinilega að standa sig best í þessum efnum í 1.deildinni....