Á morgun fær Fjarðabyggð lið Víkings R í heimsókn. KFF er í 5.sæti með 26 stig en Víkingar hafa 21 stig í 7.sæti. Á morgun fer fram heil umferð í 1.deildinni. Skoðum fyrri viðureignir nánar.
14 Ágúst, 2009 Sigur í Breiðholtinu - öðru sinni í sumar
Fjarðabyggð vann góðan sigur á ÍR í kvöld. Jói Ben skoraði sigurmarkið á 75 mín með góðu skoti frá vítateig. Sigurinn var kærkominn eftir tvo tapleiki í röð og tak KFF á ÍR heldur því áfram. KFF er nú í 5.sæti og aðeins fimm stigum á eftir Haukum þegar sex leikir eru eftir - en Haukar sitja í 2.sætinu með 31 stig. Næsti leikur er gegn Víkingi R á þriðjudaginn og hefst leikurinn kl.18:00 - en ekki 19:00. Hér á eftir fer umfjöllun fjölmiðla um leikinn í kvöld.
13 Ágúst, 2009 ÍR - Fjarðabyggð Á morgun eigast við ÍR og Fjarðabyggð í 1.deild karla. Leikurinn fer fram kl.19:00 annað kvöld á IR velli. Skoðum fyrri leiki liðanna....
07 Ágúst, 2009 Heppnin ekki með breyttu liði Fjarðabyggðar
Fremur fámennt var í áhorfendastúkunni á Eskifjarðarvelli í kvöld þegar KA-menn lögðu lið Fjarðabyggðar að velli með þremur mörkum gegn engu og "Elítunnar" var sárt sakanð.
04 Ágúst, 2009 1.deild karla.Fjarðabyggð-KA. Föstudagur , 7.ágúst, kl.19:00 á Eskifjarðarvelli KA er næsti gestur okkar. Fyrr í sumar gerðu liðinn 0-0 jafntefli á Akureyri. KFF er í fjórða sæti með 23 stig en KA í sjötta sæti með 20 stig. En nánar að fyrri viðureignum liðanna....
28 Júlí, 2009 Tap á skaganum Fjarðabyggð tapaði í kvöld fyrir IA - lokatölur 3-1. Fréttir herma að um samgjarnan sigur hafi verið að ræða og að lið KFF hafi átt slakan leik. KFF er þó enn í toppbaráttunni - já svo sannarlega því liðið situr í fjórða sæti með 23 stig eftir 14 leiki. Haukar hafa 25 stig í öðru sæti en HK 23 í þriðja sæti. Selfoss er hins vegar að stinga af og hefur 32 stig. Næst er leikur við KA þann 7.ágúst á Eskifirði en KA er í sjötta sæti með 20 stig og því um leik í efri hluta deildarinnar að ræða. Umfjöllun fotbolta.net kemur hér á síðuna seinna í kvöld....
28 Júlí, 2009 Skaginn sóttur heim Í dag kl.20:00 mætir Fjarðabyggð liði ÍA. Akurnesingar eru sem stendur i 10 sæti deildarinnar en KFF er í þriðja sæti og eiga leik til góða á HK sem skaust í annað sætið í gærkvöldi. ÍA og KFF hafa aðeins einu sinni mæst í deildarleik. Skoðum það nánar....