Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Hákon Þór Sófusson Nr.21
17 ára
Miðja/Sókn

meira
21 Júlí, 2009
Bein textalýsing
Byrjar Jóhann Ingi inná?Fyrir þá sem ekki komast á Eskifjarðarvöll í kvöld þá verða helstu tíðindi í leiknum uppfærð hér á síðunni. Leikurinn hefst kl.18:30. En von er á fréttum fyrr t.d hvernig byrjunarliðin líta út....
20 Júlí, 2009
KFF getur komist í annað sætið
Mynd:leiknir.com

Á morgun, þriðjudaginn 21.júlí kl. 18:30, eigast við Eskifjarðarvelli Fjarðabyggð og Víkingur Ó. Eins og oft hefur komið fram hér á síðunni er þetta frestaður leikur frá því síðastliðinn þriðjudag. Hér er því um að ræða lokaleikinn í fyrri hluta 1.deildarinnar - þó ein umferð sé búin af seinni hutanum. Leikurinn er liður í 11 umferð og með sigri kemst KFF í 2 sætið. Víkingur Ó er hins vegar í neðsta sæti með 7 stig en KFF hefur sem stendur 19 stig.

...
20 Júlí, 2009
Lið umferða 1-11 í fyrstu deild karla
Heimir og Páll bestu þjálfararnirGarðar Gunnar Ásgeirsson er sérfræðingur útvarpsþáttarins Fótbolta.net í 1.deild karla og á laugadaginn fór hann yfir fyrri hluta mótsins. Garðar Gunnar valdi Sævar Þór Gíslason framherja Selfyssinga besta leikmanninn hingað til og Heimir Þorsteinsson og Páll Guðlaugsson hjá Fjarðabyggð voru bestu þjálfararnir....
19 Júlí, 2009
Tap í öllum leikjum
Ævar skoraði gegn AftureldinguEkki gekk liðunum frá Fjarðabyggð vel um helgina. Mfl. karla tapaði 3-2 fyrir Aftureldingu eins og sjá má í umfjöllun hér að neðan. Mfl. kvenna lék tvo leiki um helgina. Fyrst var leikið við Þrótt R. og tapaðist hann stórt eða 7-1. Sigurveig Sædís Jóhannesdóttir skoraði markið. Í dag var svo leikið gegn HK/Víkingi og tapaðist sá leikur einnig 2-0. 2.flokkur karla tapaði í gær 3-1 gegn Aftureldingu og skoraði Ævar Valgeirsson markið. Þeir töpuðu svo aftur í dag 2-0 gegn Gróttu....
18 Júlí, 2009
1.deild umfjöllun: Langþráður sigur hjá Aftureldingu
Daníel kom Fjarðabyggð yfirAfturelding 3 - 2 Fjarðabyggð
0-1 Daníel Freyr Guðmundsson ('25)
1-1 Sigurður Helgi Harðarson ('39)
2-1 Rannver Sigurjónsson ('51)
3-1 Axel Magnússon ('85)
3-2 Haukur Ingvar Sigurbergsson ('89)...
16 Júlí, 2009
Ferðakostnaður ein milljón um helgina

Þrjú lið frá Fjarðabyggð halda suður til Reykjavíkur um helgina og spila samtals 5 leiki í Íslandsmótinu í knattspyrnu. Mfl. karla spilar á laugardag við Aftureldingu í 1. deild karla. Mfl. kvenna spilar á föstudag við Þrótt R. og síðan á sunnudag við HK/Víking. 2. flokkur karla spilar við Aftureldingu á laugardag og Gróttu á sunnudag. Samtals ferðast því 48 leikmenn, 2 þjálfarar og 2 liðstjórar og er flugkostnaður rétt tæplega 840.000. Þá er eftir að reikna með rútum á leikstaðina og þó að flestir finni sér gistingu í heimahúsum þá eru alltaf einhverjir sem þurfa gistingu. Samtals er því heildarkostnaðurinn þessa helgi um ein milljón króna. Ferðasjóður ÍSÍ er eini sjóðurinn

...
15 Júlí, 2009
Jóhann Ingi kominn frá HK
mynd. Gunnar GunnarsonFjarðabyggð fékk í dag Jóhann Inga Jóhannsson að láni frá HK. Jói þekkir vel til hjá KFF enda var hann fastamaður í liðinu á árunum 2006-2008....
15 Júlí, 2009
Afturelding ekki unnið síðan í 1.umferð - vann þá KFF!
Úr síðasta leik - sigurleiknum gegn Leikni R. Mynd tekin af leiknir.comFjarðabyggð mætir Aftureldingu í 1.deild karla á laugardaginn kl.14:00. Leikurinn er í 12 umferð. KFF er sem stendur í 4.sæti með 19 stig en eftir aðeins 10 leiki. Afturelding er hins vegar í 11.sæti með 7 stig eftir 11 leiki (sjá stöðuna í 1.deild á http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=17309). KFF á leik til góða á öll liðin í efri hlutanum en hann er gegn botnliði Víkings Ó. Með sigri í þeim leik gæti KFF náð næst besta árangri í fyrri hluta 1.deildar. Leikurinn við Víking Ó fer fram næstkomandi þriðjudag kl.18:30 á Eskifirði. En skoðum söguna í leikjum KFF og Aftureldingar....
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi