01 Júní, 2009 Nágrannaslagur í bikarnum Á morgun, þriðjudaginn 2.júní, eigast við á Eskifjarðarvelli nágrannaliðin Fjarðabyggð og Leiknir F í 2. umferð bikarkeppni KSÍ. Þessi lið hafa ást við í bikarnum áður. ...
01 Júní, 2009 Kvennaliðið lá fyrir HK/Víkingi Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis lá fyrir HK/Víkingi 0-5 á Norðfjarðarvelli. Staðan í hálfleik var 0-2 og bætti HK/Víkingur við þremur mörkum í seinni hálfleik og lokatölur því 0-5. Næsti leikur kvennaliðsins er útileikur við Selfoss laugardaginn 6.júní kl. 13:15 á Eyrarbakka....
30 Maí, 2009 Jafnt á Akureyri Fjarðabyggð sótti gott stig til Akureyrar í gærkvöld. KA stjórnaði leiknum mestan hluta hans en Fjarðabyggð varðist vel....
29 Maí, 2009 Mikið að gerast um helgina Eins og greint hefur verið frá í frétt hér að neðan þá mætast KA og Fjarðabyggð í 1. deild karla á Akureyrarvelli kl. 19.15 í dag föstudag. Á Sunnudaginn kl. 14 mætast síðan Fjarðabyggð/Leiknir og HK/Víkingur í 1. deild kvenna á Norðfjarðarvelli. 2. flokkur karla fer síðan á Sauðárkrók á mánudag og leikur við Tindastól en þá er eftir að telja Visabikarleik Fjarðabyggðar og Leiknis F. sem fram fer á Eskifjarðarvelli kl. 20 þriðjudaginn 2. júní. Líf og fjör og áfram Fjarðabyggð....
28 Maí, 2009 KA - Fjarðabyggð KA tekur á móti Fjarðabyggð í fjórðu umferð 1.deildar annað kvöld. Þessi lið hafa fjórum sinnum tekist á í 1.deildinni. Fjarðabyggð hefur unnið einn leik en þrír hafa farið jafntefli. Árið 2007 vann Fjarðabyggð heimaleikinn 3-0 en leikurinn á Akureyri endaði 1-1. Í fyrra fóru báðir leikirnir 2-2. Leikurinn á morgun verður kl 19:15 á Akureyrarvelli....
25 Maí, 2009 Jóhann Benediktsson er leikmaður 3.umferðar í 1.deild karla Jóhann Ragnar Benediktsson miðjumaður Fjarðabyggðar er leikmaður 3.umferðar í fyrstu deildinni á Fótbolta.net. Jóhann átti flottan leik þegar að Fjarðabyggð sigraði ÍA 4-2 en hann skoraði meðal annars tvívegis og lagði upp tvö mörk með löngum innköstum....
Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis og Þróttur Reykjavík mættust í 1. deild kvenna í dag. Leikar enduðu 0-2 fyrir Þrótti sem var sterkari aðilinn í leiknum. Fyrra markið kom fljótlega í fyrri hálfleik úr aukaspyrnu en Una var nálægt því að jafna eftir að hafa sloppið í gegn en markvörður Þróttar varði. Þróttur skoraði síðan annað mark í seinni hluta seinni hálfleiks og lokatölur því 0-2.
22 Maí, 2009 Fyrsti leikur kvennaliðsins Sameiginlegt lið Fjarðabyggðar og Leiknis leikur sinn fyrsta leik í 1. deild kvenna á sunnudag. Leikið verður í Fjarðabyggðarhöllinni gegn Þrótti og hefst leikurinn kl. 14. Mætum nú öll og styðjum okkar lið til sigurs....