Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Halldór B Bjarneyjarson
16 ára
Vörn/Miðja

meira
21 Júlí, 2010
Fjarðabyggð/Leiknir - Fjölnir

Í kvöld kl. 19.30 fer fram leikur Fjarðabyggðar/Leiknis og Fjölnis í 1. deild kvenna. Leikið er á Framvelli en leikurinn telst heimaleikur okkar. Liðið er nú í 3. sæti deildarinnar með 13 stig jafnmörg og ÍR en marki betra. Fjölnir er síðan í 5. sæti með 10 stig.

Fjölnir vann leikinn 2-1 en öll mörkin voru skoruð í fyrri hálfleik og skoraði Andrea Magnúsdóttir okkar mark.

...
20 Júlí, 2010
Sigur hjá 2. flokki
Sameiginlegt 2. flokks lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins vann í kvöld Hött/Einherja 2-0 á Búðagrund. Leikurinn byrjaði fjörlega og átti okkar lið nokkur góð færi en inn vildi boltinn ekki og staðan 0-0 í hálfleik. Það var síðan í seinni hluta síðari hálfleiks sem að mörkin litu dagsins ljós en Björgvin Stefán Pétursson skoraði þau bæði. Liðið er nú í 3. sæti deildarinnar með 19 stig og aðeins einu stigi á eftir Leikni/KB sem hefur leikið einum leik fleiri....
19 Júlí, 2010
Tap í eyjum og 2. flokkur leikur í kvöld

Fjarðabyggð/Leiknir tapaði leik sínum gegn ÍBV í Eyjum 5-1 en Alexandra Tómasdóttir skoraði markið úr vítaspyrnu.

Sameiginlegt 2. flokkslið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins leikur síðan í kvöld mánudaginn 19. júlí kl. 20 á Búðagrund gegn Hetti/Einherja. Mætum öll og styðjum strákana.

...
17 Júlí, 2010
Sigur og tap

Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis sigraði í gærkvöldi Sindra á Hornafirði 1-0 með marki frá Rósu Húgósdóttur og eru nú í 4. sæti með 13 stig eftir 9 leiki.

Karlaliðið tapaði í dag fyrir Víkingi R. 1-2 á Eskifjarðarvelli en þeir Dofri Snorrason og Egill Atlason komu Víking í 2-0 áður en Jóhann Ragnar Benediktsson minnkaði muninn. Fjarðabyggð er eftir sem áður í 9. sæti deildarinnar með 11 stig en betur má ef duga skal en mikið andleysi einkenndi leik liðsins í dag. Framundan eru mikilvægir leikir og munu strákarnir án efa leggja allt í þá.

...
16 Júlí, 2010
Þrír leikir um helgina

Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis leggur land undir fót um helgina og leikur tvo leiki. Fyrst í kvöld kl. 20 við Sindra á Hornafirði og síðan á sunnudag kl. 12 við ÍBV í eyjum.

Karlaliðið mætir svo Víkingi frá Reykjavík á laugardag kl. 14 á Eskifjarðarvelli. Fyrri leikur þessara liða lauk með sigri Víkings 2-1 í Víkinni en Fjarðabyggð vann báða leikina við Víking í fyrra 3-1 í Víkinni og 3-2 sælla minninga á Eskifirði. Komum öll og styðjum Fjarðabyggð til sigurs.

...
15 Júlí, 2010
Tvö rauð á Fjarðabyggð í jafntefli gegn Þór
- Gunnar Gunnarsson skrifar fyrir Agl.is
Fjarðabyggð 1-1 Þór:
0-1 Ármann Pétur Ævarsson
1-1 Fannar Árnason ('27)
Rauð spjöld: Daniel Sakaluk, Fjarðabyggð ('95), Heimir Þorsteinsson þjálfari Fjarðabyggðar ('95)
...
14 Júlí, 2010
Fjarðabyggð - Þór Akureyri

Fjarðabyggð tekur á móti Þór Akureyri í kvöld miðvikudaginn 14. júlí kl. 20. Leikið verður á Eskifjarðarvelli en miklar framkvæmdir hafa verið í gangi á Eskifjarðarvelli við að tyrfa svæði og nú er kominn upp glæsileg vallarklukka sem taka á í notkun í kvöld ef allt gengur eftir.

Bæði lið þurfa nauðsynlega á sigri að halda en Fjarðabyggð er nú í 10. sæti deildarinnar með 10 stig en Þór er í 3. sæti með 21 stig. Fjölmennum nú á völlinn og styðjum Fjarðabyggð til sigurs.

...
12 Júlí, 2010
Sveinbjörn Jónasson í Fjarðabyggð
Sveinbjörn og Bjarni Formaður Fjarðabyggðar eftir undirskrift

Sveinbjörn Jónasson skrifaði í dag undir samning við Fjarðabyggð og mun spila með liðinu út árið 2011.

Sveinbjörn spilaði með Fjarðabyggð árið 2008 og skoraði það sumarið 13 mörk í 22 leikjum og varð þriðji markahæstur í 1. deild.

...
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi