
Eggert Gunnþór Jónsson, leikmaður Hearts í Skotlandi, átti frábæran leik þegar liðið gerði jafntefli, 1-1, gegn Celtic á Celtic Park á laugardaginn. Skoskir fjölmiðlar hrósa Eggerti mikið fyrir frammistöðuna og þá sérstaklega hversu vel honum gekk að eiga við japönsku stórstjörnuna Shunsuke Nakamura, sem spilaði á hægri kantinum hjá Celtic.
...