13 Nóvember, 2008 Eggert Gunnþór inn í landsliðshópinn fyrir Grétar Rafn Eggert Gunnþór Jónsson Eskfirðingurinn knái sem leikur hjá Hearts hefur verið kallaður inní landsliðshópinn í stað Grétars Rafn Steinssonar leikmanns Bolton á Englandi....
11 Nóvember, 2008 Þjálfari Hearts: Vildi að það væru til fleiri leikmenn eins og Eggert Laszlo Csaba, þjálfari Hearts, hrósar Eggerti Gunnþóri Jónssyni fyrir frammistöðuna í leiknum gegn St. Mirren í skosku úrvalsdeildinni á laugardaginn en íslenski landsliðsmaðurinn skoraði sigurmarkið í leiknum. ,,Þegar ég kom hingað spilaði Eggert einungis eina stöðu,” sagði Csaba á heimasíðu Hearts....
Hearts sigraði St.Mirren 1-0 á útivelli í skosku úrvalsdeildinni í gær. Eggert Gunnþór skoraði sigurmarkið með skalla á 79.mín. Hearts er í 4.sæti með 17 stig.
06 Nóvember, 2008 Getraunaþjónustan opnar Laugardaginn 8. nóvember opnar getraunaþjónusta Þróttar á efri hæðinni í Sigfúsarhúsi. Opið verður alla laugardaga í vetur frá kl. 10.30-13. Mætum nú sem flest og tippum á 13 rétta eða bara kíkið við í kaffi og spjall. Munið að merkja alltaf við félagsnúmerið 740 þegar tippað er í sölukössum....
04 Nóvember, 2008 Búið að stofna félag 1.deildarfélaga Á laugardag voru stofnuð samtök 1. deildarfélaga að fyrirmynd þeirra samtaka sem liðin í Landsbankadeildinni hafa með sér. Fulltrúar flestra liða úr fyrstu deild karla voru mætt á fundinn og Gísli Gíslason hjá ÍA, Björn Einarsson hjá Víkingi R. og Unnsteinn Einar Jónsson hjá Þór voru kosnir í stjórn....
01 Nóvember, 2008 Dregið í töfluröð í 1. deild karla Í dag var dregið í töfluröð 1. deildar karla. Fjarðabyggð byrjar leik á heimavelli gegn nýliðum Aftureldingar sem koma úr 2. deild. Annar heimaleikur næsta sumars verður svo gegn ÍA sem féll eins og allir vita úr úrvalsdeildinni í haust. Síðan í 3. heimaleik mætum við sigurvegurum 2. deildar í sumar eða ÍR. Fjórði heimaleikur næsta sumars er gegn HK en þeir féllu einmitt úr úrvalsdeildinni í haust. Síðasti leikurinn næsta sumar er á útivelli gegn Víkingi Ólafsvík. Smellið hér á tengilinn til að sjá uppröðun leikja í 1. deild karla næsta sumar. http://www.ksi.is/mot/motalisti/urslit-stada/?MotNumer=17309&Rodun=U...
24 Október, 2008 Lokahófið nálgast Lokahóf KFF verður haldið í Jósafatssafninu Neskaupstað laugardaginn 25. október og opnar húsið kl. 19:30. Í boði verður thailenskt hlaðborð 4-5 rétta og fordrykkur verður í boði Ölgerðar Egils Skallagrímssonar. Jens Garðar Helgason verður veislustjóri og ræðumaður kvöldsins. Pétur St. Arason mætir á svæðið með gott prógramm og Andri Bergmann mun skemmta lýðnum eins og honum er einum lagið. Vinsamlega athugið að ekki er posi á barnum og því einungis hægt að kaupa sér söngvökva með pening í hönd. Mætum öll með góða skapið og áfram Fjarðabyggð....