Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Unnur Ólöf Tómasdóttir
15 ára


meira
22 Ágúst, 2008
Fjarðabyggð - Þór Akureyri
Á morgun laugardaginn 23. ágúst kl. 16 mætast Fjarðabyggð og Þór A. í 18. umferð 1. deildar karla á Eskifjarðarvelli. Fyrir leikinn er Fjarðabyggð í 9. sæti með 19 stig en Þórsarar hafa stigi meira í 7. sæti. Sigur í leiknum myndi færa Fjarðabyggðarliðið í 6. sæti deildarinnar og aðeins 2 stigum frá 5. sæti. Þetta er því gríðarlega mikilvægur leikur og nú fjölmennum við á völlinn og styðjum liðið til sigurs. Áfram Fjarðabyggð....
22 Ágúst, 2008
Síðasti leikur kvennaliðsins
Síðasti leikur kvennaliðs Fjarðabyggðar/Leiknis er í dag föstudaginn 22. ágúst kl. 18 gegn Völsungi á Norðfjarðarvelli. Völsungur hefur sterku liði á að skipa og hafa fyrir leikinn tryggt sér efsta sæti riðilsins. Við rammann reip verður að draga fyrir okkar lið en allt er hægt í fótbolta sérstaklega ef við fjölmennum á völlinn og styðjum liðið....
18 Ágúst, 2008
Tap í seinni leiknum

2-0 tap varð staðreynd í seinni leik Tindastóls og Fjarðabyggðar/Leiknis í 1. deild kvenna en leikurinn fór fram á Sauðárkróki. Byrjunarlið Fjarðabyggðar/Leiknis var, Mark: Þórdís. Vörn: Hafrún, Gerður, Gréta, Guðbjörg og Solla. Miðja: Inga Bryndís, Guðbjörg Jóns, Bergey og Salóme. Frammi: Ásta. Bekkur: Jónína, Svanhvít, Inga S, Una og Tinna H. Liðstjóri var Heiðdís. Nú er bara að gíra sig upp fyrir síðasta leik sumarsins gegn sterku liði Völsungs á Norðfjarðarvelli næstkomandi föstudag kl. 18. Áfram Fjarðabyggð.

...
17 Ágúst, 2008
Mikilvægur sigur Leiknis:
Leiknir 2-1 Fjarðabyggð:
0-1 Sveinbjörn Jónasson
1-1 Tómas Michael Reynisson
2-1 Einar Örn Einarsson ('89)

Leiknismenn unnu í dag mikilvægan sigur í botnbaráttunni en Einar Örn Einarsson tryggði liðinu sigur með marki undir lokin. Leiknismenn voru í fallsæti fyrir leikinn eftir sigur Njarðvíkinga á Haukum í gær. Leikurinn var því eins og fyrr segir mikilvægur fyrir Breiðhyltinga....
15 Ágúst, 2008
Leiknir R. - Fjarðabyggð

Laugardaginn 16. ágúst kl. 14 mætast Leiknir R. og Fjarðabyggð í 17. umferð 1. deildar karla. Fyrri leik liðanna á Eskifjarðarvelli lauk með 2-2 jafntefli eftir að Leiknir R. hafði komist í 0-2 en Sveinbjörn Jónasar skoraði bæði mörk Fjarðabyggðar undir lok leiksins og tryggði stigið. Fjarðabyggð er nú í 6. sæti með 19 stig en Leiknir R. er nú í 11. sæti með 13 stig. Áfram Fjarðabyggð.

...
15 Ágúst, 2008
Fjarðabyggð/Leiknir vann Tindastól

Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis vann í kvöld góðan sigur á Tindastól á Sauðárkróki. Lokatölur urðu 0-1 og skoraði Salóme Rut Harðardóttir sigurmarkið. Byrjunarlið Fjarðabyggðar/Leiknis var þannig skipað: Þórdís, Hafrún, Guðbjörg, Gréta, Gerður, Solla, Inga Bryndís, Ásta, Guðbjörg Jóns, Bergey og Salóme. Frábær sigur og nú eru liðin jöfn í deildinni með 6 stig en þau mætast aftur á Sunnudag kl. 14.

...
13 Ágúst, 2008
Fjarðabyggð 0 - 1 ÍBV
0-1 Agustine Nsumba

Logn, skýjað og um tíu stiga hiti var þegar ÍBV kom í heimsókn til Fjarðabyggðar. Leikurinn byrjaði rólega og ekki mikið um færi en mikil barátta var í báðum liðum og ætluðu leikmenn greinilega að leggja sig alla fram í leiknum....
11 Ágúst, 2008
Toppliðið í heimsókn!

Á morgun, þriðjudag, fer fram stórleikur á Eskifjarðarvelli þegar ÍBV sækir Fjarðabyggð heim.

...
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi