Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Sigríður Ásdís Jónsdóttir
33 ára


meira
25 Júlí, 2008
Tap á Hornafirði
Fjarðabyggð/Leiknir tapaði í gær 5-1 gegn Sindra á Hornafirði. Sindri byrjaði leikinn betur og komst 2-0 yfir á fyrstu mínútum leiksins en Salóme Rut Harðardóttir minnkaði muninn í 2-1 fyrir leikhlé. Sindri bjargaði svo á línu í byrjun seinni hálfleiks en þegar leið á hálfleikinn tóku þær völdin og skoruðu 3 mörk til viðbótar og lokastaðan því 5-1. Næsti leikur er útileikur gegn Hetti þriðjudaginn 29. júlí kl. 20 á Vilhjálmsvelli....
24 Júlí, 2008
Byrjunarliðið í kvöld
Jóhann Ingi Jóhannsson þjálfari kvennaliðs Fjarðabyggðar/Leiknis hefur tilkynnt byrjunarliðið fyrir leikinnn í kvöld gegn Sindra en leikið er á Hornafirði. Mark: Þórdís. Miðverðir: Guðbjörg Jóns og Guðbjörg Rós. Bakverðir: Ríkey og Sólveig. Miðja: Gerður, Ásta og Sigurveig. Kantmenn: Bergey og Salóme. Frammi: Una. Varamenn: Inga Bryndís, Inga Sæbjörg, Gréta og Hafrún....
21 Júlí, 2008
Næstu leikir
Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis ferðast á Hornafjörð á fimmtudaginn 24. júlí þar sem liðið mætir Sindra kl. 20. Síðasti leikur kvennaliðsins var einmitt gegn Sindra síðastliðinn miðvikudag í Fjarðabyggðarhöllinni og vann Fjarðabyggð/Leiknir leikinn 1-0. Karlaliðið á einnig ferðalag fyrir höndum því sunnudaginn 27. júlí mæta þeir Haukum á Ásvöllum í Hafnarfirði kl. 14....
18 Júlí, 2008
Steinn tryggði KA stig í blálokin
Fjarðabyggð 2 - 2 KA
0-1 Arnar Már Guðjónsson
1-1 Vilberg Marinó Jónasson
2-1 Guðmundur Atli Steinþórsson
2-2 Steinn Gunnarsson...
17 Júlí, 2008
Fjarðabyggð - KA
Fyrsti leikur Fjarðabyggðar í seinni umferðinni í 1. deild er gegn KA á Eskifjarðarvelli kl. 20 í kvöld fimmtudaginn 17. júlí. Með sigri í kvöld nær Fjarðabyggð norðanmönnum í KA að stigum því fyrir leikinn er KA í 6. sæti með 14 stig en Fjarðabyggð í 9. sæti með 11 stig....
16 Júlí, 2008
Frábær sigur á Sindra
Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis vann í kvöld frábæran 1-0 sigur á Sindra frá Hornafirði í Fjarðabyggðarhöllinni. Það var Una Sigríður Jónsdóttir sem skoraði markið í fyrri hálfleik sem skildi liðin að eftir að hafa komist innfyrir vörn Sindra og neglt boltann í netið. Gaman var að fylgjast með liðinu sem spilaði vel og virtust leikmenn staðráðnir í að vinna leikinn. ...
16 Júlí, 2008
Gísli lánaður í Leikni F.
Gísli Már MagnússonGísli Már Magnússon leikmaður Fjarðabyggðar hefur nú verið lánaður í Leikni Fáskrúðsfirði út tímabilið. Gísli er tvítugur miðjumaður og fer nú yfir í Leikni F. til að öðlast leikreynslu. Við óskum Gísla alls hins besta í þessu nýja verkefni og vonum að hann komi tvíefldur tilbaka....
15 Júlí, 2008
Fjarðabyggð/Leiknir - Sindri
Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis og Sindra mætast á morgun miðvikudaginn 16. júlí kl. 20 í Fjarðabyggðarhöllinni. Þessi leikur átti að spilast í ágúst en að ósk liðanna hefur hann nú verið færður til morguns. Fjölmennum nú í höllina og hvetjum kvennaliðið til sigurs....
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi