21 Júní, 2008 Völsungur fór með 3 stig Það var Völsungur sem fóru með 3 stig úr Fjarðarbyggðarhöllinni í dag og urðu lokatölur 1-5. Völsungur byrjaði leikinn á því að skora úr sinni fyrstu sókn en eftir það var jafnræði með liðinum....
Það eru leikir hjá báðum meistaraflokkunum um helgina. Stelupurnar spila kl 14 á laugardag og fer leikurinn fram í Fjarðabyggðarhöllinni og er við Völsung. Stelpurnar hafa ekki náð að sýna sitt rétta andlit í síðustu leikjum en vonandi verður bót á því á laugardag. Þá eru strákarnir að spila við Stjörnuna og fer sá leikur fram kl 14 á sunnudag og er á Eskifjarðarvelli. Strákarnir sýndu flottan leik á móti FH í vikunni og eru til alls líklegir...
20 Júní, 2008 Góður leikur hjá strákunum í gær Það var geysilega áræðið og gott Fjarðabyggðarlið sem mætti á Eskifjarðarvöll í gær og það var ekki að sjá að annað liðið væri að gera tilkall til íslandsmeistaratitils en hitt í baráttu í næstefstudeild. FHingar komust hvorki lönd né strönd í fyrri hálfleik og voru stálheppnir að komast í hálfleik með hreint mark. Guðmundu Atli fékk tvö sannkölluð dauðafæri í fyrri hálfleik en var gríðarlega óheppinn að skora ekki og jafnvel hefði mátt dæma vítaspyrnu í öðru færinu....
Það verður hart tekist á í kvöld, FHingar að koma í heimsókn og þeir eru væntanlega ákveðnir í að rétta úr kútnum eftir tap gegn Breiðablik í síðustu umferð þar sem þeir misstu af toppsætinu til Keflavíkur en þar voru þeir búnir að vera allt mótið. Okkar drengir töpuðu líka síðasta deildarleik og eru því væntanlega staðráðnir í að sýna sitt rétta andlit í þessum leik.
Fjarðarbyggð fær ríkjandi bikarmeistara FH í heimsókn á fimmtudaginn. FHingar hafa verið á góðu skriði í Landsbankadeildinni í sumar en töpuðu reyndar síðasta leik á móti Breiðablik. Þeir eru sem stendur í öðru sæti og hafa gríðarlega sterku liði á að skipa. Leikurinn er kl 19:15 og fer fram á Eskifjarðarvelli.
15 Júní, 2008 Tap á Akureyri Lið Fjarðabyggðar tapaði í gær 0-1 fyrir Þór á Akureyrarvelli. Framan af var leikurinn opinn og skemmtilegur en ekki náðist að setja mark í fyrri hálfleik þrátt fyrir mörg góð tækifæri....
13 Júní, 2008 Þór - Fjarðabyggð Laugardaginn 14. júní kl. 14 mætast Þór og Fjarðabyggð á Akureyrarvelli í 1. deild karla. Eftir 6 umferðir eru Þórsarar í 9. sæti með 6 stig og hafa skorað 9 mörk en fengið 16 á sig. Fjarðabyggð er í 4. sæti með 9 stig og hafa skorað 13 mörk en fengið 11 á sig. Spáð er fínu veðri og nú rífa strákarnir sig upp eftir heldur dapurt gengi í síðustu leikjum. Áfram Fjarðabyggð....