Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Andrea Magnúsdóttir
15 ára


meira
28 Júní, 2010
Rán um hábjartan dag í Njarðvík
Á þetta var dæmt víti. Óskiljanleg ákvörðunÍ leik Njarðvíkur og Fjarðabyggðar síðastliðinn laugardag var dæmt víti á Srdjan Rajkovic markmann Fjarðabyggðar í uppbótartíma. Eysteinn Þór Kristinsson náði þessari flottu mynd af atvikinu en hún sýnir klárlega að Rajko er með hendina á boltanum við það að kýla hann frá en samt var dæmt víti og gefið gult spjald. Leikmenn og þjálfarar Fjarðabyggðar voru mjög ósáttir við þennan dóm enda alveg í lokin og með því að skora út vítinu jafnaði Njarðvík í 1-1. En endilega smellið á myndina og skoðið sjálf....
26 Júní, 2010
Umfjöllun: Tvær vítaspyrnur og dramatík í lokin í Njarðvík
Jói Ben skoraði örugglega úr víti
Njarðvík 1 - 1 Fjarðabyggð
0-1 Jóhann Ragnar Benediktsson ('84, Víti)
1-1 Rafn Markús Vilbergsson ('90, Víti)
Rautt spjald: Daniel Sakaluk (Fjarðabyggð) ('77)

Jafntefli 1 - 1 var niðurstaðan úr leik Njarðvík og Fjarðabyggðar á Njarðtaksvellinum í dag.

Aðstæður til leik voru góðar og smá rigningarkafli í fyrrihálfleik bleytti aðeins í leikmönnum.
...
25 Júní, 2010
Nóg að gerast í boltanum

Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis hefur staðið í ströngu undanfarna daga því á miðvikudag spiluðu þær á Eskifjarðarvelli gegn Hetti og endaði leikurinn með jafntefli 1-1. Andrea Magnúsdóttir skoraði markið. Síðan í kvöld héldu þær á Akureyri og spiluðu við Þór/KA í 16 liða úrslitum Visabikarsins. Leikurinn endaði 9-0 fyrir Þór/KA enda eitt besta liðið á landinu en okkar stelpur öðlast reynslu við þetta enda flestar mjög ungar. Á morgun laugardag kl.14 spila síðan Njarðvík og Fjarðabyggð í 1. deildinni á Njarðtaksvelli.

...
24 Júní, 2010
Umfjöllun: Víkingur Ólafsvík í 8 liða úrslit í fyrsta skipti
- Gunnar Örn Arnarson skrifar frá Ólafsvík
Víkingur Ólafsvík 3 - 2 Fjarðabyggð
1-0 Aleksandrs Cekulajev ('15)
1-1 Aron Már Smárason ('50)
2-1 Tomasz Luba ('56)
3-1 Aleksandrs Cekulajev ('63)
3-2 Stefán Þór Eysteinsson ('76)
...
21 Júní, 2010
Fjórir leikir á fjórum dögum
Framundan eru fjórir leikir á fjórum dögum hjá meistaraflokksliðum Fjarðabyggðar. Á miðvikudag fer karlaliðið alla leið til Ólafsvíkur og spilar þar við Víking í 16 liða úrslitum Visabikarsins. Sama dag leikur kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis við Hött á Eskifjarðarvelli. Á föstudag leikur svo kvennaliðið gegn Þór/KA í 16 liða úrslitum Visabikarsins á Akureyri og á laugardag spila karlarnir í Njarðvík í 1. deildinni. Kíkið á tímasetningar leikjanna hér á síðunni hægra megin og mætið á völlinn til að hvetja Fjarðabyggð áfram til sigurs....
21 Júní, 2010
2. flokkur: Sigur á útivelli gegn Skallagrími/HKL
Sameiginlegt lið 2. flokks Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins vann Skallagrím/HKL í Borgarnesi í gær með þremur mörkum gegn einu. Mörkin skoruðu Hákon Þór Sófusson, Almar Daði Jónsson og Hilmar Freyr Bjartþórsson. Liðið hefur nú leikið 6 leiki, unnið 5 og tapað einum og eru í efsta sæti riðilsins....
19 Júní, 2010
Aron fagnaði í Blikatreyju: Þess virði að leggja HK
Aron Már Smárason hér til hægri í leik með Njarðvík
,,Það er ekki slæmt að koma hingað á Kópavogsvöll og sýna hvað í mér býr og hirða stigin af HK-mönnum, ég get ekki kvartað yfir þessu," sagði Aron Már Smárason framherji Fjarðabyggðar sem skoraði fyrra mark liðsins í 0-2 sigri á HK í dag en hann er lánsmaður frá Breiðabliki.
,,Við gerðum nákvæmlega það sem við ætluðum að gera, spila agaðan bolta og sækja hratt. Það gekk fullkomlega í dag, það var ansi fallegt, bara eins og falleg rós."

...
19 Júní, 2010
Umfjöllun: Þéttur varnarleikur tryggði Fjarðabyggð sigur á HK
HK 0-2 Fjarðabyggð:
0-1 Aron Már Smárason ('8, víti)
0-2 Hilmar Freyr Bjartþórsson ('30)

Fjarðabyggð vann góðan útisigur á HK á Kópavogsvelli í dag en góður og agaður varnarleikur er að skila þeim auknum stigum í deildinni svo þeir eru á leið upp töfluna
...
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi