Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Felix Hjálmarsson Nr.18
20 ára
Vörn/Miðja/Sókn

meira
09 Maí, 2008
Nýjir þjálfarar hjá kvennaliðinu
Nú áðan var gengið frá ráðningu þjálfara fyrir kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis en það hefur verið þjálfaralaust undanfarnar vikur eftir að Viðar Jónsson sagði starfi sínu lausu. Þeir Jóhann Ingi Jóhannsson og Kjartan Orri Sigurðsson hafa í sameiningu tekið þetta spennandi verkefni að sér. Jóhann Ingi er frá Reyðarfirði og stundar nú nám í Íþróttaakademíunni í Reykjanesbæ. Hann er leikmaður karlaliðs Fjarðabyggðar og hefur töluverða reynslu af þjálfun bæði í karla og kvennaflokki....
09 Maí, 2008
Aleksandar komin með leikheimild
Klár í fyrsta leik

Makedóníumaðurinn Aleksandar Konjanovski kom til landsins á þriðjudagskvöld eftir langt og strangt ferðalag frá Skopje höfuðborg Makedóníu. Hann var svo að sjálfsögðu mættur á fyrstu æfinguna með Fjarðabyggð á Norðfjarðarvelli á miðvikudag. Veðrið tók vel á móti Aleks og aðspurður leist honum mjög vel á allar aðstæður.

...
08 Maí, 2008
Sigurður Víðisson semur við Fjarðabyggð
Sigurður Víðisson kom frá HKSigurður Víðisson fyrrum leikmaður HK hefur gert 2 ára samning við Fjarðabyggð. Sigurður er 21 árs miðjumaður og hefur verið á láni frá HK síðan í febrúar en hefur nú samið um að vera hjá Fjarðabyggð til ársloka 2009. Sigurður hefur alla tíð spilað með HK en var á láni hjá Víkingi Ólafsvík síðasta sumar og spilaði með þeim 14 leiki í 1. deildinni og skoraði 1 mark....
07 Maí, 2008
Fjarðabyggð spáð 4. sæti
Í árlegri spá fotbolta.net er Fjarðabyggð spáð 4. sæti í 1. deildinni í sumar. Síðan fékk alla fyrirliða og þjálfara til að spá og fengu liðin því stig frá 1-11 eftir því en ekki var hægt að spá fyrir sínu eigin liði. Í fjórða sætinu í þessari spá er Fjarðabyggð sem fengu 171 stig af 242 mögulegum. Kíkið á umfjöllunina um Fjarðabyggð. ...
04 Maí, 2008
Fjarðabyggð 5 - 0 Völsungur
Gummi Atli var með þrennu

Fjarðabyggð lagði í dag 2. deildarlið Völsungs 5-0 í æfingaleik á gervigrasinu í Neskaupstað. Mikil rigning setti sitt mark á leikinn og þá aðallega áhorfendur sem ákváðu flestir að horfa á leikinn úr bílum sínum. Strákarnir létu þó veðrið ekki hafa áhrif á sig og staðan í hálfleik var 1-0 eftir mark Guðmundar Atla Steinþórssonar. Guðmundur Atli skoraði svo annað mark sitt snemma í seinni hálfleik og staðan orðin 2-0.

...
03 Maí, 2008
Æfingaleikur á Norðfjarðarvelli
Á morgun sunnudaginn 4. maí mætast karlalið Fjarðabyggðar og Völsungs í æfingaleik á Norðfjarðarvelli kl. 14. Þetta er síðasti leikur Fjarðabyggðar fyrir Íslandsmótið í 1. deild sem hefst mánudaginn 12. maí gegn KA á Akureyrarvelli. Völsungar voru að keppa í dag sinn síðasta leik í Lengjubikarnum en þeir lögðu þar Leikni F. 5-2 í Fjarðabyggðarhöllinni. Völsungur keppir í sumar í 2. deild Íslandsmótsins. Fjölmennum á völlinn og hvetjum Fjarðabyggð til sigurs....
03 Maí, 2008
Tap í Lengjubikarnum
Í dag spiluðu kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis og Höttur í Lengjubikarnum. Leikurinn fór fram í Fjarðabyggðarhöllinni og lauk með sigri Hattar sem skoruðu sex mörk gegn engu. Staðan í hálfleik var 2-0 Hetti í vil og bættu þær um betur í seinni hálfleik með því að skora fjögur mörk. Nú er bara að bíta á jaxlinn þrátt fyrir slæm úrslit og gera betur í næsta leik....
02 Maí, 2008
Stelpurnar spila í Lengjubikarnum

Síðasti leikur kvennaliðs Fjarðabyggðar/Leiknis verður á morgun laugardag gegn Hetti. Leikið verður í Fjarðabyggðarhöllinni og hefst leikurinn kl.16:00. Reyndar átti þessi leikur að fara fram um síðustu helgi en honum var frestað þar sem okkar lið átti ekki heimagengt í leikinn.

...
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi