Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Í hvaða sæti endar karlalið Fjarðabyggðar í 1. deild í sumar?
7.-8. sæti
9.-10. sæti
11.-12 .sæti
6. sæti eða ofar
  


Sasithorn Phuangkaew
23 ára
Sókn

meira
27 Apríl, 2008
Fjarðabyggð sigraði Leikni F.

Fjarðabyggð - Leiknir F. 2-0.

45. mínúta. 1-0 Vilberg Marinó Jónasson.

59. mínúta. 2-0 Vilberg Marínó Jónasson.

...
26 Apríl, 2008
Kvennaleiknum frestað og æfingaleikur hjá körlunum
Leik Fjarðabyggðar/Leiknis og Hattar sem vera átti í dag hefur veriði frestað um viku og verður leikinn laugardaginn 3. maí kl. 16. Karlalið Fjarðabyggðar mun mæta liði Leiknis frá Fáskrúðsfirði í æfingaleik í Fjarðabyggðarhöllinni kl. 16 á morgun sunnudaginn 27. apríl. Einnig er nánast frágengið að karlaliðið mæti liði Völsungs frá Húsavík sunnudaginn 4. maí í Fjarðabyggðarhöllinni í síðasta æfingaleik liðsins fyrir íslandsmótið sem hefst þann 12. maí....
25 Apríl, 2008
Samstarfssamningur Fjarðaáls og KFF
Frá undirritun samningsÍ dag var undirritaður samstarfssamningur milli Fjarðaáls og Knattspyrnufélags Fjarðabyggðar. Samningurinn er til þriggja ára og sá stærsti sem KFF hefur gert hingað til. Meginatriði samningsins eru að KFF og Fjarðaál hyggjast vinna náið saman að framgangi knattspyrnunnar í Fjarðabyggð einkum með tilvísun til yngri flokka sem eru framtíð félagsins. Haldin verður Alcoadagur hvert ár þar sem slegið verður upp mikilli veislu og megináhersla lögð á tengingu fyrirmyndanna í meistaraflokkum félagsins til yngri flokka....
24 Apríl, 2008
Breyttur félagaskiptagluggi hefur mikil áhrif á liðin hér á landi
Í ár er fyrsta árið sem miklar breytingar á íslenska félagaskiptaglugganum hafa áhrif á liðin í deildum landsins. Breytingin er sú að 16. maí lokar félgaskiptaglugganum hér á landi og þá geta leikmenn ekki skipt á milli liða fyrr en glugginn opnar að nýju 14. júlí....
21 Apríl, 2008
Andri Hjörvar framlengir
Andri Hjörvar AlbertssonAndri Hjörvar Albertsson leikmaður Fjarðabyggðar framlengdi í dag samning sinn við félagið út árið 2009. Andri Hjörvar er 27 ára mjög fjölhæfur leikmaður og getur leyst nánast allar stöður á vellinum einkum í vörn og á miðju. Andri kom til liðsins vorið 2006 og var kosinn leikmaður ársins það ár eftir að Fjarðabyggð hafði unnið sér sæti í 1. deild....
20 Apríl, 2008
Jafntefli á Akureyri

Tindastóll - Fjarðabyggð/Leiknir F. 1 - 1.

0-1 Tinna Rut Guðmundsdóttir á 35. mínútu

1-1 Guðrún Jenný Ágústsdóttir á 48. mínútu

Kvennalið Fjarðabyggðar/Leiknis F. gerði góða ferð norður í dag þegar liðið keppti við Tindastól í Boganum á Akureyri. Nokkur forföll voru í liðinu en þrátt fyrir það komust þær yfir með marki Tinnu Rutar en Tindastóll jafnaði í upphafi seinni hálfleiks. Niðurstaðan því jafntefli 1-1.

...
20 Apríl, 2008
Eggert skoraði í sigri Hearts

Eggert Gunnþór Jónsson skoraði eitt marka Hearts í 3-2 sigri liðsins á St. Mirren í skosku úrvalsdeildinni í dag. Ryan McCay kom St. Mirren yfir í leiknum á 20. mínútu en Eggert jafnaði metin fyrir Hearts átta mínútum síðar. Skot hans hafði viðkomu í varnarmanni St. Mirren og hafnaði í netinu.

...
18 Apríl, 2008
Stelpurnar leika fyrir norðan..
Stelpurnar spila á sunnudaginn í Lengjubikarnum við Tindastól í Boganum á Akureyri. Leikurinn verður kl.15:00. Allir að mæta sem staddir verða á Akureyri....
 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi