06 Júní, 2010 Umfjöllun um ÍR leik kemur seinna Beðið verður með umfjöllun um leikinn við ÍR á meðan að verið er að safna saman samantektum um viðbrögð okkar leikmanna og þjálfara vegna óheyrilegra viðbragða dómara og aðstoðardómara í leiknum og eftir leik. Segjum ekki meira bili en látum ekki við þetta sitja....
Í kvöld mættu stelpurnar í KFF/Leikni liði Sindra í annað skipti á sjö dögum. Síðasta föstudag vannst sigur á Sindra 3-2 og vonir voru um að sama yrði upp á teningnum í kvöld.
04 Júní, 2010 Tveir leikir um helgina Í kvöld kl. 20 spilar Fjarðabyggð/Leiknir gegn Sindra í Visabikar kvenna á Norðfjarðarvelli. Liðin mættust einmitt í 1. deild um daginn á sama stað og þá sigraði Fjarðabyggð/Leiknir 3-1. Karlalið Fjarðabyggðar fer suður á morgun laugardag og spilar gegn toppliði ÍR en þeir eru efstir í deildinni með 10 stig en Fjarðabyggð í 10. sæti með 3 stig. Áfram Fjarðabyggð....
Á miðvikudaginn 2. júní kl. 18 mætast Fjarðabyggð og Njarðvík í 32 liða úrslitum Visabikars karla í Fjarðabyggðarhöllinni. Fjarðabyggðarmenn eru staðráðnir í að gera betur en í síðasta deildarleik gegn Gróttu þar sem liðið átti slæman leik. Stuðningur áhorfenda er mikilvægur og því um að gera að mæta og hvetja Fjarðabyggð til sigurs.
Stjórn KFF sem og leikmenn standa í ströngu þessa dagana. Mikið leikjaálag er hjá öllum flokkum KFF sem og við undirbúning Eskifjarðarvallar. Vinna við að gera Eskifjarðarvöll löglegan skv. kröfum KSÍ er í fullum gangi, búið að panta vallarklukku, tyrfing öryggissvæða er komin í gang sem og vinna við aðgengi leikmanna. Leikmenn og stjórnarmenn eru að vinna að þessum lagfæringum. Í kvöld kl. 20 óskum við eftir sjálfboðaliðum til að hjálpa okkur að leggja út þökur á Eskifjarðarvelli. Endilega mætið ef þið hafið tök á.
28 Maí, 2010 Glæsilegur sigur á Sindra Fjarðabyggð/Leiknir vann í kvöld sigur á Sindra 3-2 í 1. deild kvenna. Leikið var á Norðfjarðarvelli og var það Sindri sem komst yfir eftir tvítekna óbeina aukaspyrnu inni í vítateig á 44. mínútu og staðan í hálfleik 0-1 fyrir gestina. Fjarðabyggð/Leiknir var svo betra liðið í seinni hálfleik og jöfnunarmarkið kom á 54. mínútu en það skoraði Ragnheiður Björg Magnúsdóttir. Á 64. mínútu braut markvörður Sindra á Andreu Magnúsdóttur og víti dæmt. Petra Lind Sigurðardóttir markvörður fór á punktinn og skoraði með góðu skoti. Það var síðan Andrea Magnúsdóttir sem skoraði þriðja markið á 81. mínútu en Sindri minnkaði muninn á 93. mínútu rétt áður en flautað var til leiksloka. Flottur sigur og góð mæting á völlinn eða um 100 áhorfendur....