Fjarðabyggð og Njarðvík gerðu markalaust jafntefli í miklum rokleik á Eskifjarðarvelli. Fjarðabyggð lék undan vindi í fyrri hálfleik en illa gekk að hemja boltann og þrátt fyrir nær látlausa sókn voru færin fá. Í seinni hálfleik áttu bæði lið góð skot en Fjarðabyggð fékk tvö góð færi en markvörður Njarðvíkur varði bæði skotin. Enn er því Fjarðabyggð stigi frá því að koma sér úr fallsæti en þrír leikir eru eftir í deildinni og góður möguleiki enn til staðar.