22 Ágúst, 2010 2. flokkur: Sigur í toppslag gegn Gróttu
Sameiginlegt 2. flokks lið Fjarðabyggðar/Leiknis/Hugins vann Gróttu 3-2 á Búðagrund í toppslag C-deildarinnar. Það voru Haraldur Bergvinsson, Hilmar Freyr Bjartþórsson og Kristján Smári Guðjónsson sem skoruðu mörkin. Liðið er nú í efsta sæti með 29 stig eftir 14 leiki og markatalan er 41-29. Leiknir/KB og Grótta koma í næstu sætum með 26 og 25 stig eftir 12 leiki en spilaðir eru 16 leikir í sumar.