Markmið KFF er að eiga lið í efstu deild, bæði í karla og kvennaflokki. Þangað förum við með þinni hjálp!


Fannar Árnason Nr.19
21 árs
Sókn

meira


07 Mars, 2010
Fjarðabyggð vann Njarðvík í fimm marka leik
...
06 Mars, 2010
ÍA skellti Fjarðabyggð
ÍA 3 - 1 Fjarðabyggð
1-0 Ragnar Leósson
2-0 Ólafur Valur Valdimarsson
2-1 Hilmar Freyr Bjartþórsson
3-1 Ragnar Leósson...
04 Mars, 2010
Daníel aftur í Fjarðabyggð
Fjarðabyggð fékk í dag varnarmanninn Daníel Frey Guðmundsson lánaðan út leiktíðina frá Fylki. Daníel spilaði samtals 24 leiki með Fjarðabyggð síðasta sumar og skoraði í þeim 2 mörk. Daníel var einmitt valinn í úrtakshóp U-19 ára landsliðsins í lok síðasta sumars en Daníel verður 19 ára í apríl. Frábært að fá Daníel aftur enda stóð hann sig mjög vel síðasta sumar og er góður félagi. Daníel mun spila með Fjarðabyggð um helgina í Lengjubikarnum gegn ÍA og Njarðvík en báðir leikirnir fara fram syðra....
03 Mars, 2010
Gamlar myndir en ekki svo
Á sigurstunduNú er búið að setja inn nokkrar myndir frá fagnaðarlátum Fjarðabyggðar eftir 3-2 sigurleik gegn Reyni Sandgerði í undanúrslitum 3. deildar árið 2004. Sigurinn tryggði Fjarðabyggð sæti í 2. deild og má sjá mörg kunnuleg andlit en sjón er sögu ríkari. Smellið á Myndir hér vinstra megin og síðan á myndina sem merkt er 3. deild. Þá birtast fleiri myndir og þá smelliði á eina myndina til að skoða myndirnar stórar. Njótið vel....
01 Mars, 2010
Eggert með glæsimark
...
27 Febrúar, 2010
Grindavík sigraði Fjarðabyggð
...
26 Febrúar, 2010
Samstarf í leikmannamálum
Óðinn í fullri strekkinguÁgætis samstarf hefur undanfarið verið í leikmannamálum milli Fjarðabyggðar og Leiknis F. og er það vel. Leiknismenn lánuðu okkur markvörð sinn Óðinn Ómarsson þann 20. febrúar í mánuð til að leysa Rajko af í markinu þar sem Rajko nefbrotnaði í leik við Hött. Sannarlega vinargreiði enda spilaði Fjarðabyggð um síðustu helgi við Þór Akureyri í Lengjubikarnum þar sem Óðinn stóð í markinu og stóð sig vel. Tveir uppaldir leikmenn Leiknis F. gengu einmitt í raðir KFF um áramót þ.e. þeir Hilmar Bjartþórs og Adnan Mesetovic. Marinó Óli Sigurbjörnsson lék með KFF síðasta sumar mun nú aftur snúa til Leiknis og væntanlega munu einhverjir fleiri úr KFF spila sem lánsmenn með Leikni F. í sumar....
26 Febrúar, 2010
Stórleikur í höllinni
Það verður sannkallaður stórleikur í Fjarðabyggðarhöllinni á morgun laugardaginn 27. febrúar kl. 14. Þá mætir úrvalsdeildarlið Grindavíkur til leiks gegn Fjarðabyggð í A-deild riðli 1 í Lengjubikarnum. Fyrrum leikmaður Fjarðabyggðar Sveinbjörn Jónasson leikur nú með Grindavík en Sveinbjörn var markahæsti leikmaður Fjarðabyggðar sumarið 2008. Fjölmennum nú í höllina og styðjum strákana til sigurs en aðgangur er ókeypis. Áfram Fjarðabyggð....


Leikur án fordóma

KSÍ með stuðningi UEFA og Mastercard stendur fyrir verkefninu Knattspyrna - Leikur án fordóma.  Verkefnið er þríþætt og miðar að því að útrýma fordómum úr knattspyrnunni á Íslandi, koma í veg fyrir einelti og leggja áherslu á heiðarlegan leik. Sjá nánar á vef ksi.is







 
© 2009 copyright Knattspyrnufélag Fjarðabyggðar Strandgötu 46, 735 Eskifjörður, sími 864-8704, fax 470-1121, e-mail: kff@kff.is ARON Vefumsjónarkerfi